Öll verkefni

Hopp Taxi Driver

Hopp Taxi keyrir á leigubílakerfi sem við þróuðum og innleiddum með Hopp, ásamt Hopp Taxi Driver appinu sem bílstjórarnir nota.

Viðskiptavinur
Hopp
Í loftið
Júní 2023
Okkar hlutverk
Leigubílabakendi, bílstjóraapp, leigubílar í Hopp appinu
Tækni
React Native, GraphQL
Hopp Taxi Driver appið sýnir nýja ferð með upphafs- og áfangastað

Hvað Hopp vantaði

Hopp var þegar rafskútufyrirtæki. Þegar lögum um leigubíla var breytt vildi Hopp bjóða upp á leigubíla.

Til þess þurfti leigubílabakenda, bílstjóraapp og leigubíla í Hopp appinu.

Það sem við gerðum

Við þróuðum leigubílakerfið og innleiddum það með Hopp.

Síðan hjálpuðum við Hopp að samþætta leigubíla inn í appið sem fólk notar fyrir rafskútur og smíða Hopp Taxi Driver, appið sem bílstjórar nota.

Bílstjóraappið er einn React Native kóðagrunnur fyrir iOS og Android sem talar við GraphQL bakenda.

Útkoman

Hopp fór af stað með leigubíla í júní 2023 með um 50 bílstjóra.