Við smíðum öppog vefi.Sem þúsundir treystaá daglega.

Enum er tveggja manna hugbúnaðarstofa í Reykjavík. Við hjálpum bönkum, hinu opinbera, verslunum og fjölmiðlum að smíða öpp, vefi og kerfin á bak við þau.

Valin verkefni

Landsbankinn, 2020

Landsbankinn

Hraði og aðgengi voru ófrávíkjanlegar kröfur þegar við hjálpuðum Landsbankanum að smíða nýjan vef.

Skoða verkefnið

Stafrænt Ísland, 2021 til 2024

Ísland.is appið

Ísland.is appið var virkilega skemmtilegt og krefjandi verkefni sem þjónar tugþúsundum Íslendinga í hverri viku.

Ökuskírteinið og skotvopnaleyfið fara beint í veski símans.

Skoða verkefnið

Google, 2021

Google Quantum AI

Árið 2021 unnum við með Upperquad að tveimur síðum á vef Google Quantum AI: korti af vegferð þeirra í skammtatölvum og ferð um rannsóknarstofuna með skruni.

Upperquad gerði alla grafíkina. Við forrituðum síðurnar.

Skoða verkefnið

Hagar, 2025

Takk

Ásamt teymi Haga smíðuðum við appið fyrir Takk, nýtt vildarkerfi Bónuss, Hagkaups og Eldum rétt.

Skoða verkefnið

Tixly, 2024

Tixly Scanner

Starfsfólk á viðburðum skannar miða með nýju appi fyrir iOS og Android sem við smíðuðum í samvinnu við Tixly.

Skoða verkefnið

Fyrir Olís veittum við ráðgjöf og hjálpuðum til við að smíða Olís – ÓB appið, sem kemur dælulyklinum, greiðslum og tilboðum í símann.

Skoða verkefnið

Hopp Taxi keyrir á leigubílakerfi sem við þróuðum og innleiddum með Hopp, ásamt Hopp Taxi Driver appinu sem bílstjórarnir nota.

Leigubílar eru pantaðir í sama Hopp appi og fólk notar fyrir rafskútur.

Skoða verkefnið

Embætti landlæknis, 2021

Rakning C-19

Í heimsfaraldrinum tókum við þátt í að smíða útgáfu smitrakningarapps Íslands sem notaði smitrakningarforritaskil Apple og Google beint, og skanna fyrir bólusetningarvottorð.

Skoða verkefnið

Enum, 2026

Biketune

Biketune er okkar eigið app sem gerir símann og ódýrt OBD tengi að greiningartæki fyrir mótorhjólið, eins og hjá umboðinu.

Bilanakóðar, lifandi vélargögn, endurstilling á þjónustuáminningu og kóðun. Fyrir BMW mótorhjól og OBD-II hjól.

Skoða verkefnið

Viðskiptavinir

Tveir forritarar. 35 ára reynsla samanlagt.

Enginn verkefnastjóri sem spyr hvort þetta sé ekki örugglega tilbúið. Þú talar beint við fólkið sem skrifar kóðann.

Mynd af Birkir Rafn Guðjónsson
Birkir Rafn GuðjónssonTæknistjóri. 20 ára reynsla í hugbúnaðargerð.
Mynd af Bjarni Freyr Björnsson
Bjarni Freyr BjörnssonFramkvæmdastjóri. 15 ára reynsla í hugbúnaðargerð.

Eigin verkefni

Vörur sem við smíðum og rekum sjálfir.

Lykilkort

Stafræn skírteini fyrir Apple Wallet og Google Wallet. Starfsmannaskírteini, félagsskírteini og aðgangskort, gefin út á örfáum mínútum.

lykilkort.is

Mintum

Fyrsta íslenska rafkrónan, sem við byggðum á Solana bálkakeðjunni, ásamt skiptimarkaði fyrir rafdollara.

Skoða verkefnið

Segðu okkur frá verkefninu. Eða segðu bara hæ.

[email protected]

Eða hringdu í +354 792 1337.