Öll verkefni

Ísland.is appið

Ísland.is appið var virkilega skemmtilegt og krefjandi verkefni sem þjónar tugþúsundum Íslendinga í hverri viku.

Viðskiptavinur
Stafrænt Ísland
Tímabil
2021 til 2024
Okkar hlutverk
Greining, appforritun, bakendi
Tækni
React Native, TypeScript, GraphQL
Forsíða Ísland.is appsins með nýjustu skilaboðum og stöðu umsókna

Hvað Stafrænt Ísland vantaði

Eitt app fyrir samskipti við hið opinbera. Póstur frá stofnunum, staða umsókna og skírteinin þín, allt í símanum.

Það sem við gerðum

Við unnum með Stafrænu Íslandi að greiningu og forritun frá 2021 til 2024. Rafræn skjöl, skírteini, tilkynningar og staða umsókna, allt í einu appi.

Hægt er að setja ökuskírteini og skotvopnaleyfi í veski símans. Appið er smíðað í React Native og TypeScript, með GraphQL.

Fyrir kosningarnar 2021 hjálpuðum við líka til við að smíða skannaapp sem kjörstaðir notuðu til að staðfesta rafræn ökuskírteini.

Útkoman

Kom út í mars 2022. Um 80.000 niðurhöl á fyrsta árinu.

Verkefnasaga Ísland.is, febrúar 2023.