Öll verkefni

Mintum

Fyrsta íslenska rafkrónan, skráð hjá Seðlabankanum. Lokað árið 2026 vegna MiCA reglna Evrópusambandsins.

Viðskiptavinur
Rafmyntasjóður Íslands
Ár
2022
Okkar hlutverk
Stefnumótun, mörkun, app, bakendi, bálkakeðja
Tækni
React Native, Node.js, GraphQL, Mantine, Solana

Hvað Mintum vantaði

Rafmyntasjóður Íslands vildi að Íslendingar gætu fært sig milli króna og rafmynta á sekúndum, nánast án kostnaðar.

Það sem við gerðum

Við hönnuðum og smíðuðum Mintum appið, framendann á vefnum og kerfin á bak við þau, fyrir félag sem við eigum helming í.

ISKT er rafmynt sem er tengd krónunni einn á móti einum og keyrir á Solana bálkakeðjunni. Bakendinn er tengdur bankakerfinu, svo krónur sem eru lagðar inn af bankareikningi verða að ISKT í veski notandans. Nýskráning fer fram með rafrænum skilríkjum.

Enum á helming í Rafmyntasjóði Íslands.

Útkoman

Skráð hjá Seðlabanka Íslands árið 2022. Árið 2026 lokuðu MiCA reglur Evrópusambandsins þjónustunni, að minnsta kosti í bili.

Tilkynning Mintum, 2026.