Öll verkefni

Olís – ÓB appið

Fyrir Olís veittum við ráðgjöf og hjálpuðum til við að smíða Olís – ÓB appið, sem kemur dælulyklinum, greiðslum og tilboðum í símann.

Viðskiptavinur
Olís
Í loftið
Febrúar 2025
Okkar hlutverk
Ráðgjöf, appforritun
Tækni
React Native, GraphQL

Hvað Olís vantaði

Viðskiptavinir Olís og ÓB fengu afsláttinn sinn með dælulykli úr plasti. Olís vildi fá hann í símann.

Og með honum: greiðslur með símanum, tilboð um leið og þau bjóðast og kort af öllum stöðvum Olís og ÓB.

Það sem við gerðum

Við unnum með Olís að stefnumótun, mörkun og tæknilegri uppbyggingu. Síðan hjálpuðum við til við að smíða Olís – ÓB appið og tengja það innri kerfum Olís.

Viðskiptavinir sjá sín kjör og stöðu í vildarkerfinu, greiða með korti í veski símans, finna stöðvar og halda utan um áskriftir.

Appið er einn React Native kóðagrunnur fyrir iOS og Android.

Útkoman

Nýja appið fór í loftið í febrúar 2025. Dælulykillinn er núna í símanum.

Frétt Olís, 2. febrúar 2025.