Rakning C-19
Í heimsfaraldrinum tókum við þátt í að smíða útgáfu smitrakningarapps Íslands sem notaði smitrakningarforritaskil Apple og Google beint, og skanna fyrir bólusetningarvottorð.
- Viðskiptavinur
- Embætti landlæknis
- Ár
- 2021
- Okkar hlutverk
- Hönnun og appforritun
- Tækni
- React Native, TypeScript

Hvað Landlækni vantaði
Smitrakningarapp Íslands var komið í þriðju útgáfu. Það þurfti að nota smitrakninguna sem Apple og Google höfðu byggt inn í símana.
Það sem við gerðum
Við hjálpuðum til við að hanna og smíða útgáfu Rakningar C-19 sem notaði smitrakningarforritaskil Apple og Google beint, í gegnum React Native brú yfir í iOS og Android.
Samhliða hjálpuðum við til við að hanna og smíða Skanna C-19, app til að skanna bólusetningarvottorð.
Allt þurfti þetta að gerast hratt.